Chloe nokkur Jade fékk ekki að fara til Katar á Heimsmeistaramótið í knattspyrnu eins og hún ætlaði sér.
Jade, sem er bandarísk, eyddi háum fjárhæðum í miða til Katar og á völlinn á HM.
„Ég á að vera í Katar en ég fékk ekki að fara inn,“ segir Jade í myndbandi á TikTok.
Hún bendir á að gestir þurfi svokallaðan Hayya-passa til að komast til Katar þessa stundina, þar sem HM er í gangi.
Til að fá slíkan passa þarf að kaupa miða á leik á HM. Það má taka þrjá gesti með sér á einum passa. Gestirnir þurfa hins vegar allir að borga um 130 Bandaríkjadali.
„Ég fór í gegnum allt ferlið og fór á flugvöllinn í Kúveit til að fara í flugið til Katar. Ég var búinn að borga fyrir allt en það var ómögulegt að fá Hayya-passann.
Enn og aftur eyddi ég því peningum til að fara ekki til Katar. Ég fékk ekki að fara um borð því ég var ekki með passann. Ég fór til Dúbaí í staðinn og þurfti að kaupa miðann á staðnum.“
Þegar Jade lenti í Dúbaí var passinn sendur á netfangið hennar. „Takk fyrir ekkert Katar. Ég sé þig kannski aldrei.“