Anthony Martial framherji Manchester United lenti á Spáni í vikunni en hann er gekk í raðir Sevilla á Spáni í.
Martial var lánaður út þessa leiktíð en Sevilla greiðir öll laun franska framherjans sem vildi ólmur losna frá United.
Martial var kynntur formlega til leiks í gær en hann fékk heldur betur kveðju frá goðsögn við komuna til Sevilla.
Þannig hafði Sevilla fengið hinn magnaða Ronaldo til að kasta kveðju á Martial, hann tjáði honum hversu frábær spænski boltinn er.
Athygli vekur að Ronaldo hefur enga tengingu við Sevilla en hann lék með Real Madrid og Barcelona á ferli sínum.
Kveðjuna má sjá hér að neðan.
This is for a loan player! Sevilla rolled out Ronaldo for Martial?! He doesn’t have any connection to the club! pic.twitter.com/yqGGozAmSb
— Swift Kicks (@realSwiftKicks) January 27, 2022