Christian Eriksen er byrjaður að æfa fótbolta af fullum krafti og hefur nú hafið æfingar með Ajax í Hollandi. Þar hóf þessi danski miðjumaður feril sinn sem atvinnumaður.
Eriksen fór í hjartastopp á Evrópumótinu í sumar og fékk gangráð en sökum þess varð hann að yfirgefa Inter. Á Ítalíu er bannað að spila með slíkt.
Eriksen er hins vegar á barmi þess að ganga í raðir Brentford í ensku úrvalsdeildinni.
Til að koma sér í form á nýjan leik hefur Eriksen fengið leyfi til að æfa með varaliði Ajax en búist er við að hann semji við Brentford til sex mánaða.
Eriksen er 29 ára gamall en hann hefur leikið með Ajax, Tottenham og Inter á ferli sínum.