Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur samið við færeyska landsliðsmanninn Patrik Johannesen um að spila með liðinu. Patrik kemur frá norska liðinu Egersund þar sem hann spilaði á síðasta ári.
Patrik getur spilað bæði á kanti og sókn og er öflugur leikmaður sem mun auka breiddina hjá hópnum okkar fram á við á komandi tímabili.
Hann hefur á ferlinum leikið 187 leiki og skorað í þeim 79 mörk.