Hinn sjötugi Roy Hodgson er að snúa aftur í fótboltann en hann er að taka við Watford af Claudio Ranieri.
Ranieri var rekinn frá Watford í gær eftir örfáa mánuði í starfi en liðið berst fyrir lífi sínu.
Hodgson lét af störfum sem stjóri Crystal Palace síðasta sumar en hann er 74 ára. Talið er að Hodgson taki við Watford í dag en hans verk er að reyna að bjarga liðinu frá falli.
Næsti leikur Watford er um aðra helgi þegar liðið mætir Burnley í algjörum fallbaráttuslag.