Arsenal hefur fengið tækifæri til þess að fá Luka Jovic framherja Real Madrid á láni út þessa leiktíð.
Jovic er í aukahlutverki hjá Real Madrid en Arsenal vantar framherja eftir að Mikel Arteta stjóri liðsins fór í stríð við Pierre-Emerick Aubameyang.
Arsenal hefur vonast eftir því að fá Dusan Vlahovic framherja Fiorentina en hann vill ekki fara til félagsins.
Búist er við því að Vlahovic fari til Juventus á næstu dögum en samlandi hans Jovic gæti leyst vandamál Arsenal.
Félagaskiptaglugginn lokar á mánudag og ljóst að mikið gæti gerst á næstu dögum á markaðnum.