Senegal er komið áfram í 8-liða úrslit Afríkukeppninnar eftir 2-0 sigur á Grænhöfðaeyjum í kvöld.
Patrick Andrade, leikmaður Grænhöfðaeyja, fékk að líta rauða spjaldið eftir rúman 20 mínútna leik og staðan orðin ansi brött fyrir liðsfélaga hans.
Senegal tókst ekki að nýta sér liðsmuninn í fyrri hálfleik og staðan markalaus þegar liðin gengu til búningsklefa.
Ekki skánaði útlitið fyrir Grænhöfðaeyjar í seinni hálfleik þegar Vozinha, markvörður liðsins, var rekinn af velli á 57. mínútu eftir að lenda í samstuði við Sadio Mane og liðið tveimur mönnum færri.
Það var Mane sem kom Senegal í forystu sex mínútum síðar en Mane fór svo meiddur af velli þegar 20 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Bamba Dieng bætti við öðru mark Senegal í uppbótartíma og lokatölur 2-0. Senegal mætir annað hvort Malí eða Miðbaugs-Gíneu í 8-liða úrslitunum á sunnudag.