Mario Balotelli, fyrrum leikmaður Liverpool og Manchester City, hefur verið valinn í ítalska landsliðshópinn í fyrsta sinn frá árinu 2018 er Evrópumeistararnir undirbúa undanúrslitaleik í útsláttarkeppni HM.
Balotelli, sem er 31 árs gamall, hefur skorað átta mörk í 18 leikjum fyrir tyrkneska liðið Adana Demirspor þar sem íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason er einnig á mála.
Ítalía mætir Norður Makedóníu 24. mars í undanúrslitaleik í útsláttarkeppni HM.
Balotelli hefur skorað 14 mörk í 36 leikjum fyrir Ítalíu, en hefur einungis leikið þrjá leiki síðan á HM 2014. Hann spilaði áður undir stjórn Roberto Mancini hjá Inter Milan og Manchester City.