fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Keane ákvað að draga Tottenham niður úr skýjaborgunum

Aron Guðmundsson
Mánudaginn 24. janúar 2022 08:05

Roy Keane

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Roy Keane, fyrrum leikmaður Manchester United og sérfræðingur Sky Sports um enska boltann, var nokkuð beinskeyttur í gagnrýni sinni á Tottenham eftir 2-0 tap liðsins gegn Chelsea í nágrannaslag helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Tottenham er sem stendur í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og þarf að mati Keane að styrkja leikmannahóp sinn ef liðið ætlar að berjast við efstu lið deildarinnar um sæti í Meistaradeild Evrópu en hann getur ekki ímyndað sér hvaða heimsklassa leikmenn myndu semja við Tottenham.

,,Vandamálið er hvaða topp leikmenn myndu fara til Tottenham? Þá sérstaklega í janúer eða næsta sumar ef liðið kemst ekki í Meistaradeild Evrópu. Knattspyrnustjórinn getur reynst aðdráttarafl en hann verður kominn á lokaár síns samning á þessum tíma ef hann verður yfir höfuð enn þarna,“ sagði Roy Keane á Sky Sports eftir leik Chelsea og Tottenha.

Hann segir að jafnvel þó að Conte myndi fá nægan pening til þess að fjárfesta í leikmönnum í janúar, yrði félagið samt í vandræðum.

,,Það er enginn topp leikmaður laus í janúar sem myndi vilja ganga til liðs við Tottenham,“ sagði Roy Keane.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Pétur Theódór snýr aftur heim til Gróttu eftir erfið meiðsli

Pétur Theódór snýr aftur heim til Gróttu eftir erfið meiðsli
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Carlo Ancelotti brast í grát þegar þetta var að gerast

Carlo Ancelotti brast í grát þegar þetta var að gerast
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Nagelsmann hafnar Bayern og heldur áfram í sama starfi

Nagelsmann hafnar Bayern og heldur áfram í sama starfi
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar