Eins og fram hefur komið síðustu vikur vill Anthony Martial ólmur komast frá Manchester United í janúar. Að sögn ESPN er hann þó ekki sá eini sem nú reynir að komast í burtu frá Old Trafford.
Hinn 26 ára gamli Martial hefur engan veginn staðið undir væntingum frá komu sinni til Man Utd frá Monaco árið 2015. Hann er dottinn úr liðinu og yrðu eflaust allir aðilar sáttir ef hann leitaði annað.
Miðvörðurinn Eric Bailly vill einnig komast í burtu frá Man Utd.
Fílbeinsstrendingurinn vill fara í lið þar sem hann fær að spila meira en hann gerir hjá Man Utd.
Bailly er 27 ára gamall. Hann kom til Man Utd árið 2016. Miðvörðurinn hefur leikið 113 leiki fyrir félagið.