Eiginkona Victors Lindelöfs, varnarmanns Manchester United og börn þeirra, voru skelfingu lostin er innbrotsþjófar birtust heima hjá þeim og gerðu sig líklega til þess að stela hlutum á meðan að Lindelöf var sjálfur í Brentford að spila með Manchester United.
Sagt er frá málinu í The Sun í dag en eiginkona Lindelöfs og tvö börn þeirra neyddust til þess að fela sig og læsa sig inni á sínu eigin heimili á meðan að þjófarnir létu greipar sópa á heimili þeirra.
Maja, eiginkona Lindelöfs, skrifaði um málið á samfélagsmiðli sínum.
,,Ég var ein heima með börnin en við náðum að fela og læsa okkur inn í herbergi áður en að þeir komust inn í húsið,“ skrifaði Maja um atvikið.
Hún segir að hún og börnin séu í áfalli eftir atvikið en fjölskyldan ákvað að best væri að taka sér smá frí í heimalandi sínu, Svíþjóð, til þess að jafna sig eftir atvikið.
,,Við erum í fínu ásigkomulagi miðað við aðstæður en þetta er auðvitað mikið áfall og skelfileg upplifun fyrir mig og börnin,“ skrifaði Maja, eiginkona Vicors Lindelöf, varnarmanns Manchester United.
Lindelöf spilaði allan leikinn fyrir Manchester United á móti Brentford þetta örlagaríka kvöld í leik sem vannst.
Manchester United hefur heitið því að gera allt það sem til þarf til þess að hjálpa fjölskyldunni en Lindelöf verður ekki í leikmannahópi Manchester United í næsta leik liðsins gegn West Ham.
Ralf Ragnick, bráðabirgðaknattspyrnustjóri Manchester United segist hafa rætt við leikmanninn.
,,Hann sagði mér að á þessari stundi þurfi hann að eyða tíma með fjölskyldu sinni. Hann vill ekki skilja eiginkonu sína og börnin ein eftir, ég skil það að sjálfsögðu verandi faðir sjálfur,“ sagði Ralf Ragnick.