fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
433Sport

Farbanni yfir Gylfa Þór framlengt fram yfir miðjan apríl

Aron Guðmundsson
Fimmtudaginn 20. janúar 2022 08:44

Gylfi Þór Sigurðsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Farbann yfir Gylfa Þór Sigurðssyni knattspyrnumanni hefur verið framlengt til 17. apríl næstkomandi, Þetta kemur fram á vísi.is. Gylfi Þór er til rannsóknar hjá lögreglu í Manchester vegna gruns um að hann hafi brotið kynferðislega á ungmenni. Þetta staðfestir lögreglan í Manchester í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu

Gylfi Þór var handtekinn um miðjan júlí á síðasta ári og grunaður um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi. Samkvæmt miðlum á Bretlandseyjum hefur Gylfi Þór harðneitað sök í málinu.

Skömmu eftir handtökuna var Gylfi látinn laus gegn tryggingu og hefur verið laus síðan þá.

Þann 19. júlí á síðasta ári var það tilkynnt af hálfu enska úrvalsdeildarfélagsins Everton að leikmaður liðsins hefði verið sendur í ótímabundið leyfi hjá félaginu vegna lögreglurannsóknar. Um var að ræða Gylfa Þór sem hefur enn ekki verið nafngreindur í enskum miðlum sökum vegna lagalegra ástæðna.

Gylfi er á samningi hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Everton en samningur hans þar rennur út í sumar. Síðan að málið kom upp hefur Gylfi Þór ekkert spilað fyrir liðið, hann var ekki í leikmannahópi liðsins sem skráður var í ensku úrvalsdeildina og hefur einnig ekki verið hluti af íslenska landsliðinu.

Lögreglan ytra hefur gefið sér góðan tíma í rannsókn málsins sem hefur teygt anga sína yfir marga mánuði en í sambærilegu máli frá árinu 2015 sem varðaði annan knattspyrnumann tók rannsókn málsins aðeins sex vikur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Urðar yfir Bruno Fernandes – Kallar hann rottu og vesaling

Urðar yfir Bruno Fernandes – Kallar hann rottu og vesaling
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Andri Lucas Guðjohnsen í einlægu viðtali – Þetta er það sem pabbi hans sagði honum er hann var ungur

Andri Lucas Guðjohnsen í einlægu viðtali – Þetta er það sem pabbi hans sagði honum er hann var ungur
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ten Hag vill fá stuðning frá Ratcliffe – Tilbúinn að stíga til hliðar

Ten Hag vill fá stuðning frá Ratcliffe – Tilbúinn að stíga til hliðar
433Sport
Í gær

Silva staðfestir að hann sé búinn að taka ákvörðun – ,,Fáið að vita það á næstu dögum“

Silva staðfestir að hann sé búinn að taka ákvörðun – ,,Fáið að vita það á næstu dögum“