Xavi, knattspyrnustjóri Barcelona var skýr í svörum á blaðamannafundi í dag er hann var spurður út í stöðu sóknarmannsins Ousmane Dembélé.
Dembéle rennur út á samningi hjá Barcelona í sumar en viðræður um nýjan samning milli hans og Barcelona hafa ekki borið árangur hingað til.
Xavi setti málið fram á skýran hátt á blaðamannafundi í dag.
,,Dembéle verður að skrifa undir nýjan samning, ef ekki þá finnum við leið til þess að selja hann í janúar. Það er enginn annar möguleiki,“ sagði Xavi um Dembélé.
Þá furðar Xavi sig á því hversu ósammála leikmaðurinn og umboðsmaður hans virðast tjá sig um stöðu leikmannsins hjá Barcelona.
,,Umboðsmaðurinn talar eins og hann viti hver staðan er en Dembélé segir við mig að hann vilji vera áfram hjá Barcelona, ég skil þetta ekki,“ sagði Xavi, knattspyrnustjóri Barcelona á blaðamannafundi í dag.
Dembélé gekk til liðs við Barcelona frá Dortmund í ágúst árið 2017 fyrir rúmar 140 milljónir evra. Honum hefur gengið erfiðlega að festa sig í sessi hjá Barcelona.
Hann hefur spilað 129 leiki fyrir félagið, skorað 31 mark og gefið 23 stoðsendingar.