Varnarmaður Manchester United, Alex Telles er á óskalista Xavi, þjálfara Barcelona en hann ku vera afar hrifinn af leikmanninum.
Alex Telles samdi við Manchester United árið 2020 frá Porto og er hann samningsbundinn félaginu til 2024.
Telles fékk fá tækifæri undir stjórn Ole Gunnar Solskjaer en hefur fengið fleiri mínútur hjá Rangnick sem róterar honum og Luke Shaw.
Samkvæmt Mundo Deportivo vill Xavi ólmur fá Telles til Barcelona strax í janúar til að berjast við Jordi Alba um byrjunarliðssæti. Alba verður 33 ára í mars og hefur verið hjá spænska félaginu í tíu ár.