Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar, leikmaður Paris Saint-Germain, virðist hafa fundið ástina á ný, nú í örmum Bruna Biancardi. Slúðrað hefur verið töluvert um parið undanfarna mánuði en nú virðist það vera öruggt að þau séu saman.
Neymar er ekkert að flækja hlutina en fyrrum kærasta hans heitir einmitt líka kölluð Bruna.
Bruna var mynduð á meðal eiginkvenna liðsfélaga Neymars hjá Paris Saint-Germain og þá var hún einnig viðstödd þegar að Paris Saint-Germain tók á móti Nantes á dögunum. Hún sat þar með Neymar upp í stúkunni en hann hefur verið að glíma við meiðsli.
Greint er frá sambandi Bruna og Neymars á vefsíðu The Sun sem segir að þó ekki hafi fengist opinber staðfesting á því að þau séu par sé það alveg augljóst að svo sé.