Alan Shearer, markahæsti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, gefur lítið fyrir afsakanir Thomasar Tuchel, knattspyrnustjóra Chelsea, eftir 1-1 jafntefli Chelsea við Brighton í gær. Tuchel sagði leikmenn Chelsea vera þreytta eftir erfitt leikjaprógram.
Shearer segir að öll félög hafi verið að glíma við sama vandamálið hvað leikjaálag varðar. Hann benti góðfúslega á þá staðreynd að breiddin í leikmannahópi Chelsea væri mikil, Tuchel gæti gert breytingar milli leikja og nýtt leikmannahóp sinn.
,,Bekkurinn hjá honum í kvöld er metinn á 220 milljónir punda. Kovacic, Havertz, Werner, Pulisic. Mount var ekki með á laugardaginn en kom inn núna. Þessi frammistaða Chelsea, var ekki þreytuleg, sérstaklega fram á við,“ sagði Shearer í umfjöllun DAZN um leik Chelsea og Brighton.
Hann segir að sóknarlega hefði leikmönnum skort sjálfstraust. ,,Það er þess vegna sem mér finnst þetta hafa verið slök frammistaða hjá Chelsea.“
Tuchel staðfesti eftir leik í gær að leikmenn Chelsea myndu fá tveggja daga frí áður en að undirbúningur hæfist fyrir leik gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni sem fer fram á sunnudaginn.