Fyrirtöku í máli Ryan Giggs, fyrrum leikmanni Manchester United, sem sakaður er um að hafa beitt fyrrum unnustu sína grófu ofbeldi, hefur verið frestað um sjö mánuði vegna fjölda mála sem bíða þess að vera tekin fyrir.
Giggs gæti átt yfir höfði sér fimm ára fangelsi en búist er við því að réttarhöldin muni taka nokkurn tíma.
Lögregla var kölluð til á heimili Giggs og Kate Greville, fyrrum unnustu hans, í úthverfi Manchester í nóvember árið 2020 og var Giggs handtekinn á heimili sínu. Greville sakar hann um gróft líkamlegt ofbeldi.
Ensk blöð segja að lætin þeirra á milli hafi byrjað þegar hún ásakaði Giggs um að vera að halda framhjá sér og að konurnar væru tvær sem hann væri að hitta.
Framhjáhald væri ekki nýtt af nálinni í lífi Giggs. Giggs og Greville hafa verið saman síðustu ár en Giggs gekk í gegnum skilnað árið 2013 eftir að upp komst um framhjáhald hans til margra ára. Giggs hafði þá verið að sofa hjá eiginkonu bróður síns í átta ár.
Ensk blöð segja að Greville hafi komist í skilaboð í Ipad í eigu Giggs sem var tengdur við síma hans, þar gat hún skoðað skilaboð frá stelpum og er talað um að talsvert hafi verið daðrað í þeim skilaboðum. Greville þekkir konurnar, önnur starfar sem aðstoðarmanneskja knattspyrnumanna í London og hin er fyrirsæta sem býr nálægt þeim í Manchester.
Parið hafði verið að drekka saman í miðborg Manchester þegar þau komu heim á sunnudagskvöldi, ensk blöð segja sambandið hafa lengi staðið á bláþræði fyrir atvikið en Kate flutti út af heimilinu degi eftir meinta árás.
Chris Daw, talsmaður Giggs, segir hann vera vonsvikinn yfir því að málið sé að dragast svona á langinn. ,,Ég hef útskýrt stöðuna fyrir honum og hann er mjög vonsvikinn með stöðu mála. Hann er þó þakklátur fyrir þá vinnu sem lögð er í að finna nýja dagsetningu fyrir fyrirtöku málsins.
Ný dagsetning á fyrirtöku málsins er 8. ágúst en Giggs hefur verið laus gegn tryggingu frá því að hann var handtekinn. Giggs neitar allri sök í málinu og segist vera saklaus af þeim ásökunum sem eru bornar á hans hendur.
Giggs er goðsögn í sögu Manchester United en hann er hluti af hinum fræga 92′ árgangi félagsins. Hjá Manchester United varð hann Englandsmeistari 13 sinnum, vann Meistaradeild Evrópu í tvígang og varð enskur bikarmeistari í fjórgang.