Stjórnarmenn Bayern Munich ætla að bjóða Robert Lewandowski nýjan tveggja ára samning og brjóta þannig reglu félagsins um að bjóða leikmanni yfir þrítugu meira en eins árs framlengingu.
Lewandowski hefur verið í fantaformi síðustu tímabil með Bayern og hefur skorað 23 mörk í 19 leikjum í þýsku deildinni á tímabilinu.
Hann á eitt og hálft ár eftir af samningi við þýska liðið en reglan hjá Bayern er sú að gefa leikmanni yfir 30 ára aðeins eins árs framlengingu. Félagið er þó tilbúð að gera undantekningu á því og vill bjóða honum nýjan samning til tveggja ára en það þýðir að hann lækki í launum. Félagið er einnig með á borðinu eins árs samning með sömu launum.
Lewandowski var valinn leikmaður ársins á FIFA verðlaunahátíðinni á dögunum og þar forðaðist hann spurningar út í framtíð sína.