Manchester United er byrjað að skoða kosti sína fyrir sumarið en ljóst er að félagið þarf að hreinsa til í herbúðum sínum.
Telegraph segir frá því að forráðamenn United skoði það að kaupa John McGinn miðjumann Aston Villa í sumar.
Þessi 27 ára gamli skoski leikmaður hefur átt góðu gengi að fagna á miðsvæðinu á Villa Park.
Paul Pogba fer að öllum líkindum frítt frá United í sumar en miðsvæði félagsins er líklega veikasti hlekkur liðsins.
McGinn er með stóran rass að eigin sögn sem hjálpar honum innan vallar. „Það hleypur enginn eins og ég,“ sagði McGinn.
„Það er enginn með jafn stóran rass og ég, þegar ég spila ekki vel þá er alltaf arið í það að ég sé ekki nógu mikill íþróttamaður. Það gæti ekki verið fjarri sannleikanum, ég hef aldrei verið í jafn góðu formi. Ég hef aldrei verið með jafn mikla snerpu.“
Í öðrum fréttum frá United er það að Anthony Martial neitar að fara á lán til félaga á Englandi. Newcastle og Tottenham höfðu áhuga.
Barcelona, Sevilla og Juventus skoða málin en United vill að öll laun Martial verði borguð og að greitt verði fyrir þjónustu hans.