Alfreð Finnbogason snéri aftur á knattspyrnuvöllinn í gær þegar Augsburg gerði 1-1 jafntefli við Frankfurt í þýsku úrvalsdeildinni.
Alfreð kom við sögu undir lok leiksins og var nálægt því að leggja upp mark. Snilli Alfreðs spilaði samherja hans einan í gegnum vörn Frankfurt, hann klikkaði hins vegar á dauðafæri til að vinna leikinn.
Augsburg er að berjast við botn deildarinnar með 19 stig en framherjinn knái verður samningslaus í sumar.
Helstu atriði leiksins eru hér að neðan en þau eru birt með leyfi Viaplay.