Lögfræðingar sem ræddu við Morgunblaðið telja meiri líkur en minni á því að Gylfi Þór Sigurðsson verði ákærður á næstu dögum. Gylfi var handtekinn í júlí og er sakaður um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi.
Gylfi hefur verið laus gegn tryggingu frá handtöku en um helgina var það framlengt til miðvikudags. Búist er við tíðindum af máli Gylfa í vikunni.
„Þeir lögfræðingar sem mbl.is hefur rætt við segja ýmislegt benda til þess að Gylfi Þór verði ákærður í vikunni enda lítil ástæða fyrir lögreglu að framlengja trygginguna um nokkra daga ef það á að fella málið niður nokkrum dögum síðar,“ segir í frétt Morgunblaðsins.
Gylfi Þór var handtekinn á heimili sínu en ekkert hefur komið fram um hvað nákvæmlega Gylfi er sakaður. Gylfi er 32 ára gamall en samningur hans við Everton er á enda í sumar. Líklegast hefur Gylfi spilað sinn síðasta leik fyrir félagið en Everton hefur ekki notað hann frá því málið kom upp.
Verði ákært í málinu munu fara fram réttarhöld í Manchester. Gylfi hefur samkvæmt enskum blöðum harðneitað sök í málinu.
Málið var einnig til umræðu í útvarpsþættinum Fótbolta.net um liðna helgi. „Ég kannaði nú aðeins landslagið hjá mínum lögfróðu vinum. Það eru flestir á því að þetta líti ekki vel út, ef þetta væri á Íslandi þá eru þetta skefileg tíðindi. Það er enginn sem menntar sig í breskri lögfræði til að vinna á Íslandi, þau eru allt öðruvísi,“ sagði Benedikt Bóas Hinriksson í þættinum.
„Menn voru flestir sammála um að þetta væru ekki góð tíðindi.“
Elvar Geir Magnússon stjórnandi þáttarins hafði þetta að segja. „Möguleg vísbending um að það sé verið að klára ákæru. Við vitum ekkert, Gylfi hefur ekkert tjáð sig opinberlega frá handtöku í júlí.“