Pierre-Emerick Aubameyang, leikmaður Arsenal, hefur fengið leyfi frá Gabon til að yfirgefa Afríkukeppnina. Sóknarmaðurinn flýgur aftur til Lundúna vegna hjartavandamála.
Aubameyang missti af leik Gabon gegn Gana á föstudag vegna hjartavandræða (e. heart lesions) eftir að hafa fengið kórónuveiruna fyrir nokkrum dögum síðan.
Gabon tilkynnti á samfélagsmiðlum sínum að leikmaðurinn hefði greinst jákvæður þann 6. janúar síðastliðinn. Hann mun gangast undir frekari rannsóknir þegar hann mætir aftur til Arsenal.
Annar leikmaður gabonska landsliðsins, Mario Lemina, hefur einnig lokið keppni á Afríkukeppninni vegna hjartavandræða.
„Knattspyrnusamband Gabon hefur ákveðið að færa leikmennina Pierre-Emerick Aubameyang og Mario Lemina í hendur félagsliða sinna til að halda áfram frekari rannsóknum,“ stóð í yfirlýsingu.
Aubameyang, sem greindist áður með Covid í ágúst í fyrra, hefur ekki spilað fyrir Arsenal síðan fyrirliðabandið var tekið af honum vegna agabrots.