Það vakti athygli einhverra að sóknarmaðurinn Anthony Martial hafi ekki verið í hópnum hjá Manchester United í jafnteflinu gegn Aston Villa í gær. Ralf Rangnick, stjóri liðsins, segir það hafa verið vegna þess að Martial sjálfur hafi ekki viljað vera með. Leikmaðurinn hefur hins vegar stigið fram og tekur fyrir orð stjórans.
,,Hann vildi ekki vera í hópnum. Hann hefði annars verið í honum en hann vildi það ekki. Það er ástæðan fyrir því að hann ferðaðist ekki með okkur,“ sagði Rangnick um fjarveru Martial. Man Utd var aðeins með átta leikmenn á bekknum í gær í stað níu.
Nú hefur Martial hins vegar svarað þessu á Instagram: ,,Ég mun aldrei neita að spila fyrir Man United. Ég hef verið hér í sjö ár og hef aldrei vanvirt og mun aldrei vanvirða félagið og stuðningsmennina.“
Hinn 26 ára gamli Martial virðist ekki eiga framtíð hjá Man Utd. Hann hefur valdið vonbrigðum frá því hann kom frá Monaco á um 60 milljónir evra árið 2015.