Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn með West Ham í 1-1 jafntefli gegn Tottenham í ensku Ofurdeildinni í dag.
Rosella Ayane kom Spurs yfir með marki af vítapunktinum á 54. mínútu.
Kate Longhurst jafnaði fyrir West Ham í uppbótartíma leiksins.
West Ham er í áttunda sæti deildarinnar með 14 stig eftir tíu leiki.