OnlyFans-stjarnan Madelene Wright er snúinn aftur á Instagram eftir stutt hlé. Hún tilkynnir þetta með svakalegri mynd.
Wright er fyrrum knattspyrnukona. Hún var rekin frá Charlton árið 2020 í kjölfar þess að hún birti myndband af sér drekka kampavín undir stýri á Range Rover-bifreið.
Síðan þá hefur hún reynt fyrir sér á OnlyFans. Þar rukkar hún áskrifendur 24 pund, tæplega fjögur þúsund íslenskar krónur, fyrir aðgang að kynferðislegu efni af sér.
„Tók mér smá frí en ég er komin aftur elskan,“ skrifar Wright með myndbirtingunni á Instagram.
Fyrstu myndina af Wright frá endurkomunni má sjá hér að neðan.