Valur hefur ekki unnið í síðustu fjórum leikjum í Bestu deild karla og tapað síðustu tveimur. Liðið tapaði 1-0 gegn Leikni Reykjavík, sem var manni færri stærstan hluta leiksins, í gær.
Farið var yfir málefni Vals í Þungavigtinni í gærkvöldi. Þar var farið yfir ótrúlega atburðarás hjá liðinu frá 1-0 tapi gegn Breiðabliki fyrir viku síðan og þar til í leiknum í gær.
Ríkharð Óskar Guðnason, þáttastjórnandi, kveðst hafa átt samtal við leikmann Vals í gær. Var honum tjáð að daginn eftir tapleikinn gegn Blikum hafi verið golfhringur.
„Endurheimtarleikur Vals daginn eftir leik var 18-holu golfhringur. Mörgum fannst þetta mjög skrýtið, að þetta væri endurheimtin en ekki að fara yfir það sem þyrfti að bæta,“ segir Ríkharð, en Valur var mun lakari aðilinn í leiknum.
Þá segir Ríkharð að engar línur hafi verið lagðar fyrir leikmenn Vals fyrir tapleikinn gegn Leikni í gær. „Það var ekkert slíkt fyrir leikinn gegn Leikni. Það var enginn hittingur, menn mættu bara upp á völl eins og þriðju eða fjórðu deildarlið.“
„Þetta hlýtur að segja manni að Óli Jó verði ekki þarna eftir tímabilið. Er honum bara orðið alveg sama?“