Íslenska kvennalandsliðið mistókst að komast beint í lokakeppni HM í fyrsta sinn eftir leik við Holland í lokaleik riðlakeppninnar í kvöld.
Ísland þurfti sigur eða jafntefli í leik kvöldsins til að tryggja sætið og stefndi allt í að leik kvöldsins myndi ljúka með markalausu jafntefli.
Hollandi tókst hins vegar að skora á 93. mínútu í uppbótartíma til að tryggja sér sigurinn og efsta sætið.
Svekkelsi leikmanna Íslands var augljóst í beinni útsendingu RÚV enda var allt gefið í verkefnið í kvöld.
Hér má sjá þegar flautað var til leiks í Hollandi.
Búið í Hollandi. Því miður 1-0 tap og Ísland fer í umspilið. Holland tryggir sig á HM 2023. pic.twitter.com/j2G8EW9DzR
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) September 6, 2022