Það hafa margir velt því fyrir sér hvort Aron Einar Gunnarsson muni snúa aftur í íslenska landsliðið í haust, þegar liðið heimsækir Albaníu í Þjóðadeildinni.
Mál gegn Aroni og Eggerti Gunnþóri Jónssyni um meinta nauðgun í Kaupmannahöfn árið 2010 var fellt niður af hérðaðssaksóknara á í vor og niðurstaðan staðfest af ríkissaksóknara á dögunum.
Aron getur því að öllum líkindum snúið aftur í landsliðið.
Ísland á fyrir höndum leik gegn Albaníu ytra í lok mánaðar. Leikurinn gæti orðið úrslitaleikur um að vinna riðilinn í Þjóðadeildinni.
„Ég held hann hafi engan áhuga á að vera valinn,“ sagði Ríkharð Óskar Guðnason í Þungavigtinni um það hvort Aron yrði með gegn Albaníu.
Kristján Óli Sigurðsson var ekki sammála. „Mitt gisk er að fyrirliðinn mæti aftur. Þetta er stolt þjóðarinnar. Hann mætir og rífur þetta í gang. “