Kvennalið Vals er komið í úrslitaleik fyrstu umferðar undankeppni Meistaradeildar Evrópu eftir sigur á Hayasa frá Armeníu í dag. Leikið var í Slóveníu.
Valur komst yfir á 14. mínútu leiksins með marki frá Cyera Makenzie Hintzen.
Staðan var 1-0 allt þar til í blálok leiksins. Þá fengu Valskonur vítaspyrnu. Mariana Sofia Speckmaier fór á punktinn og skoraði. Lokatölur 2-0.
Undankeppnin gengur þannig fyrir sig að leikið er í fjögurra liða riðlum um sæti í næstu umferð. Það þarf að komast í gegnum tvær slíkar umferðir til að fara áfram.
Valur mætir annað hvort Pomurje frá Slóveníu eða Shelbourne frá Írlandi í leik um sæti í annari umferð undankeppninnar. Sá leikur fer fram á sunnudag.
Breiðablik tekur einnig þátt á þessu stigi keppninnar. Liðið mætir Rosenborg klukkan 16 í dag.