Síðustu tveir þættir All or Nothing: Arsenal birtust á streymisveitunni Amazon í vikunni.
Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda. Þeir fjalla um síðustu leiktíð hjá enska úrvalsdeildarliðinu Arsenal.
Í einum þættinum mátti sjá þegar Aaron Ramsdale, markvörður Arsenal, montaði sig af því að hafa fengið treyju Cristiano Ronaldo eftir leik gegn Manchester United í vor.
Það er óhætt að segja að Bukayo Saka, annar leikmaður Arsenal, hafi verið ansi öfundsjúkur þegar hann sá Ramsdale með treyju Ronaldo.
Atvikið má sjá hér að neðan.
Arsenal’s goalkeeper Ramsdale telling Saka and the others that he got Cristiano Ronaldo’s shirt. 😂pic.twitter.com/en6zM2eqg9
— The CR7 Timeline. (@TimelineCR7) August 18, 2022