Framtíð Cristiano Ronaldo hefur verið í óvissu í allt sumar.
Portúgalska stjarnan vill komast frá Manchester United og spila í Meistaradeild Evrópu. Liðið hafnaði í sjötta sæti á síðustu leiktíð og getur því ekki boðið honum það.
Ronaldo hefur verið orðaður við fjölda stórliða um allan heim í sumar en ekki tekist að semja við neitt þeirra.
Það hefur verið mikið rætt og ritað um það að ósætti Ronaldo hafi slæm áhrif á leikmannahóp United og að hann smiti út frá sér neikvæðu andrúmslofti.
Nú segir The Athletic frá því að Ronaldo neyðist nú til að borða hádegismat á æfingasvæði United einn, þar sem hann geti ekki verið í kringum aðra leikmenn liðsins eins og er.
Ronaldo hefur sýnt það í leikjum og á æfingum United að hann er afar pirraður á stöðunni.
Rauðu djöflarnir hafa byrjað tímabilið skelfilega og tapað 1-2 gegn Brighton og 4-0 gegn Brentford.