Stjarnan tók á móti Þór/KA í Bestu deild kvenna í dag.
Gyða Kristín Gunnarsdóttir kom heimakonum í 2-0 á fyrstu tíu mínútum leiksins og staðan orðin vænleg.
Þetta reyndust einu mörk fyrri hálfleiks.
Eftir um tíu mínútur af seinni hálfleik kom Arna Dís Arnþórsdóttir Stjörnunni svo í 3-0. Stundarfjórðungi síðar gerði Jasmín Erla Ingadóttir fjórða mark liðsins.
Arna Dís innsiglaði svo afar sannfærandi 5-0 sigur Stjörnukvenna þegar stundarfjórðungur lifði leiks.
Stjarnan er í öðru sæti deildarinnar með 16 stig, jafnmörg og Valur sem á þó leik til góða.
Þór/KA situr í sjöunda sæti með níu stig.