Knattspyrnugoðsögnin Michael Owen er sagður brjálaður eftir að dóttur, Gemmu, hans var ruglað saman við OnlyFans-stjörnu að nafni Jill.
Djörfum myndum af Jill frá OnlyFans-síðu hennar var dreift um internetið og einhverjir héldu því fram að þetta væri Gemma, dóttir Owen. Svo var hins vegar alls ekki.
Gemma rekur undirfatafyrirtæki og er Owen hræddur um að þetta gæti haft áhrif á rekstur þess.
Sjálf er Jill afar ósátt með það að einhverjir hafi notað myndir af henni í þessum tilgangi.
Gemma setti inn færslu á Instagram þar sem hún þvertók fyrir að myndirnar væru af henni. „Ég frétti að einhver væri að dreifa myndum og halda því fram að þær séu af mér. Myndirnar eru af OnlyFans-síðu annarar stelpu. Þær eru augljóslega ekki af mér. Ég vil þakka henni fyrir að taka af allan vafa. Svo það komi fram held ég ekki úti OnlyFans-síðu.“