fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Þénar 44 milljónir á viku en neitaði að mæta í vinnuna

Helgi Sigurðsson
Sunnudaginn 16. janúar 2022 10:11

Martial ásamt fyrrum eiginkonu sinni. Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vakti athygli einhverra að sóknarmaðurinn Anthony Martial hafi ekki verið í hópnum hjá Manchester United í jafnteflinu gegn Aston Villa í gær. Ralf Rangnick, stjóri liðsins, segir það hafa verið vegna þess að Martial sjálfur hafi ekki viljað vera með.

,,Hann vildi ekki vera í hópnum. Hann hefði annars verið í honum en hann vildi það ekki. Það er ástæðan fyrir því að hann ferðaðist ekki með okkur,“ sagði Rangnick. Man Utd var aðeins með átta leikmenn á bekknum í gær í stað níu.

Martial á góðri stundu í leik með Man Utd.

Hinn 26 ára gamli Martial virðist ekki eiga framtíð hjá Man Utd. Hann hefur valdið vonbrigðum frá því hann kom frá Monaco á um 60 milljónir evra árið 2015.

Martial hefur verið orðaður við Sevilla undanfarið.

Frakkinn þénar 250 þúsund pund í vikulaun hjá Man Utd. Það samsvarar rúmum 44 milljónum íslenskra króna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Gylfi brattur eftir sigur á uppeldisfélaginu – „Auðvelt að setja það til hliðar“

Gylfi brattur eftir sigur á uppeldisfélaginu – „Auðvelt að setja það til hliðar“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sjáðu umræðurnar sem sköpuðust hér á landi í kvöld – „Greindarskerti maður“

Sjáðu umræðurnar sem sköpuðust hér á landi í kvöld – „Greindarskerti maður“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Sjáðu markið: Hólmar kom Val yfir eftir frábæra hornspyrnu Gylfa

Sjáðu markið: Hólmar kom Val yfir eftir frábæra hornspyrnu Gylfa
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Breytingar á leikstöðum í Bestu deildinni – FH spilar heimaleik á Ásvöllum

Breytingar á leikstöðum í Bestu deildinni – FH spilar heimaleik á Ásvöllum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Erling Haaland áfram meiddur

Erling Haaland áfram meiddur
433Sport
Í gær

Ólafur Karl Finsen orðinn leikmaður Vals

Ólafur Karl Finsen orðinn leikmaður Vals
433Sport
Í gær

Stuðningsmenn United margir að fá nóg – Skila inn miðum fyrir leik kvöldsins

Stuðningsmenn United margir að fá nóg – Skila inn miðum fyrir leik kvöldsins