Anthony Martial er á lista yfir þá framherja sem Bourssia Dortmund er að fylgjast með fyrir sumarið. Erling Haaland er á förum frá félaginu næsta sumar.
Haaland verður eftirsóttur næsta sumar þegar klásúla kemur upp í samningi hans, ljóst er að hann fer frá Dortmund.
Martial er með 200 þúsund pund á viku sem er eitt af því sem hræðir Dortmund þegar málið er skoðað.
Dortmund er með fjölda útsendara á öllum völlum út um allan heim til að finna framherja til að fylla skarðið sem Haaland skilur eftir.
Martial er í aukahlutverki hjá United eftir komu Cristiano Ronaldo og virðist nokkuð öruggt að hann verði til sölu næsta sumar.