Aðdáandi nokkur rakst á Cristiano Ronaldo er sá síðarnefndi var að koma af pósthúsi í Manchester í gær.
Ronaldo er auðvitað nýfluttur aftur til borgarinnar eftir að hafa skrifað undir hjá Manchester United á nýjan leik.
Aðdáandinn var ekki lengi að rífa upp símann og taka myndband af stjörnunni sinni.
Ronaldo just casually going in the subway opposite the flat I used to live in, madness pic.twitter.com/8dU4XYIxCZ
— Alexei (@MUFC_redarmy99) September 23, 2021
Skyndibitakeðjan Subway deilir húsnæði með pósthúsinu á þessum stað og endurtísti myndbandinu og skrifaði við ,,Þá vitum við hver geitin er.“ Geit (e. GOAT – Greatest of all time) er oft notað í knattspyrnuheiminum yfir þann leikmann sem talinn er sá besti í sögunni.
That's the 🐐 debate sorted then. https://t.co/Z1ZLgGckl0
— Subway® UK (@SubwayUK) September 24, 2021
Ronaldo hefur farið frábærlega af stað með Man Utd, skorað fjögur mörk í fyrstu þremur leikjum sínum.