Paris Saint-Germain sigraði Montpellier í frönsku Ligue 1 í kvöld. Leikið var í París.
Idrissa Gana Gueye kom PSG yfir á 14. mínútu með góðu skoti.
Staðan var 1-0 allt þar til á 89. mínútu þegar Julian Draxler bætti við öðru marki og gulltryggði sigurinn. Lokatölur 2-0.
PSG er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir átta leiki.
Montpellier er í ellefta sæti með 9 stig.