Alaves gerði sér lítið fyrir og sigraði Spánarmeistara Atletico Madrid í La Liga í dag.
Victor Laguardia gerði eina mark leiksins strax á 4. mínútu.
Atletico er í öðru sæti deildarinnar með 14 stig. Alaves var að ná í sín fyrstu stig í dag, eru nú með 3 stig eftir sex leiki. Liðið situr í næstneðsta sæti.