AC Milan vann 2-0 sigur gegn Venezia í Serie A í kvöld. Leikið var á San Siro í Mílanó.
Brahim Diaz kom heimamönnum yfir á 68. mínútu. Theo Hernandez gerði seinna mark liðsins á 82. mínútu.
Bjarki Steinn Bjarkason sat allan tímann á varamannabekk Venezia. Arnór Sigurðsson var frá vegna meiðsla.
Milan er í öðru sæti deildarinnar með 13 stig eftir fimm leiki.
Venezia er í átjánda sæti með aðeins 3 stig. Liðið hefur einnig leikið fimm leiki.