West Ham tók á móti Manchester United á London Stadium í ensku úrvalsdeildinni í fyrradag. Leikurinn byrjaði nokkuð rólega en Benrahma kom West Ham yfir þegar hálftími var liðinn af leiknum.
Ronaldo jafnaði metin aðeins fimm mínútum síðar en hann var ansi hættulegur í leiknum og ógnaði mikið. Lokamínúturnar í leiknum voru ótrúlegar en Lingard kom gestunum yfir undir lok leiks með frábæru marki en hann var nýkominn inn á. West Ham fékk vítaspyrnu í uppbótartíma og var Mark Noble skipt inn á til að taka spyrnuna en David de Gea varði spyrnuna og tryggði Manchester United þrjú stig.
Mikill hiti var í leikslok, stuðningsmenn United brostu en stuðningsmenn West Ham voru niðurbrotni.
Ole Gunnar Solskjær stjóri United var ansi reiður yfir vítaspyrnudómnum eins og sjá má hér að neðan.