Ruben Dias einn besti varnarmaður enska fótboltans er einhleypur í dag eftir að hafa slitið sambandi sínu við April Ivy.
Málið hefur vakið mikla athygli í heimalandi hans Portúgal, Dias hefur eytt öllum myndum af sér og Ivy af samfélagsmiðlum sínum.
Knattspyrnukappinn sem var að skrifa undir nýjan samning við Manchester City vildi slíta sambandinu. Ástæðan er sögð vera sú að Dias var ekki hrifin af lífstíl Ivy.
Ivy er þekkt söngkona og lifir öðruvísi lífi en atvinnumaður í knattspyrnu, það hugnaðiast Dias ekki.
Parið hafði verið saman í þrjú ár og eyddu sumrinu saman í Grikklandi þar sem Ivy fagnaði 22 ára afmæli sínu.