Arsenal hefur áfram mikinn áhuga á James Maddison, sóknarsinnuðum miðjumanni Leicester. Þá er leikmaðurinn opinn fyrir því að ganga til liðs við Arsenal. Hár verðmiði sem Leicester hefur sett á leikmanninn setur þó strik í reikninginn. Sky Sports greinir frá.
Leicester vill fá um 70 milljónir punda fyrir hinn 24 ára gamla Maddison. Það er ekki víst hvort að Arsenal geti gengið að þeim verðmiða.
Maddison kom til Leicester árið 2018. Hann er samningsbundinn til ársins 2024.
Hann hefur skorað 27 mörk og lagt upp önnur 20 í 118 leikjum fyrir félagið.
Fréttaskýringu Sky Sports í heild sinni um þessi hugsanlegu félagaskipti má horfa á hér fyrir neðan.
🚨 BREAKING🚨
🔴 Arsenal remain very interested in doing a deal for Leicester City midfielder James Maddison.
✅ Maddison would be “open to the idea”.
💰 A potential deal would be difficult as Leicester’s valuation is thought to be in the region of £70m. pic.twitter.com/V8IsGyL4CP
— Football Daily (@footballdaily) August 4, 2021