Það hefur svo gott sem ekkert gengið upp hjá Víkingi Ólafsvík í Lengjudeild karla í sumar. Liðið er á botni deildarinnar með 5 stig eftir 16 leiki, 10 stigum frá öruggu sæti. Í síðustu umferð töpuðu Víkingar svo 0-7 á heimavelli gegn Fjölni.
Ólsarar voru til umræðu í Markaþætti Lengjudeildarinnar á Hringbraut í kvöld.
,,Oft hefur maður séð í viðtölum eftir leik þegar þjálfarar segja að menn hafi gefist upp og maður kaupir það ekki alveg. En Gaui (Guðjón Þórðarson, þjálfari Víkings) kom inn á það eftir leik og ég kaupi það. Þeir gáfust bara upp. Þeir hættu að nenna þessu og það er náttúrulega bara sorglegt þegar þú ert í svona stöðu. Það var smá möguleiki þarna, hefðu þeir sótt eitthvað í þessum leik. En þá mæta menn bara svona í seinni hálfleik, það er bara djók,“ sagði Hrafnkell Freyr Ágústsson, sérfræðingur þáttarins. Fimm marka Fjölnis komu í seinni hálfleik.
,,Þeir eru búnir að fá á sig 56 mörk í sumar. Það míglekur allt þarna,“ bætti Hörður Snævar Jónsson, þáttastjórnandi, við.
Hér fyrir neðan má sjá umræðuna um Víking Ólafsvík, sem og Markaþátt Lengjudeildarinnar í heild sinni.