Lionel Messi nýtur nú lífsins á Ibiza á meðan hann fær ekki að mæta á æfingar hjá Barcelona.
Samningur Messi við Börsunga rann út fyrir um mánuði síðan. Búist er við því að hann skrifi undir nýjan fimm ára samning og taka á sig 50% launalækkun áður en nýtt tímabil á Spáni hefst.
Barcelona hefur þó ekki enn tekist að setja saman samningstilboðið. Á meðan Argentínumaðurinn er ekki samningsbundinn fær hann ekki að mæta á æfingasvæðið.
Hann er þessa stundina á Ibiza með félaga sínum Luis Suarez, leikmanni Spánaremeistara Atletico Madrid.