Giorgio Chiellini varnarmaður Juventus og fyrirliði hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram á vef BBC. Samningurinn gildir til ársins 2023 en þá verður Chiellini orðinn 38 ára gamall.
Hann var samningslaus í sumar þegar hann leiddi Ítalíu til sigurs á EM 2020. „Hann er stór þáttur í sögu Juve, sem og nútíð og framtíð félagsins,“ stóð í yfirlýsingu frá félaginu.
Chiellini hefur unnið 15 titla á 16 árum með Juve, þar á meðal níu Ítalíumeistaratitla í röð frá árunum 2011-12 til 2019-20.
„Giorgio Chiellini endurspeglar allt sem Juventus stendur fyrir, og hann hefur unnið sér inn þennan nýja samning með frammistöðum sínum og dugnaði á undanförnum 16 árum. DNA Giorgio og Juventus rennur inn í hvert annað.“