Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson var rekinn af velli í leik AGF og Larne í Sambandsdeildinni í kvöld. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en Larne vann einvígið 3-2 samanlagt eftir 1-2 sigur í fyrri leik liðanna.
Jón Dagur fékk að líta sitt annað gula spjald í leiknum á 26. mínútu og AGF því manni færri meirihluta leiksins. Ronan Hale náði forystunni fyrir Norður-Íranna rétt undir lok fyrri hálfleiks. Patrick Olsen jafnaði metin fyrir danska liðið á 73. mínútu en það dugði ekki til og 3-2 samanlagður sigur Larne niðurstaða.