Þorlákur Árnason segir að starf yfirmanns knattspyrnumála hjá Knattspyrnusambandi Íslands myndi ekki heilla hann, yrði honum boðið það. Hann ræddi þetta í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag.
Arnar Þór Viðarsson, þjálfari A-landsliðs karla hjá Íslandi, gegnir stöðunni áfram fram á haust. Eftir það er líklegt að KSÍ leiti að nýjum einstaklingi í starfið.
Þorlákur hefur undanfarin ár gegnt stöðunni hjá knattspyrnusambandi Hong Kong. Það lá því beinast við að Hjörvar Hafliðason, þáttastjórnandi Dr. Football, myndi spyrja hann út í það hvort hann hefði áhuga á stöðunni hjá KSÍ.
,,Nei,“ svaraði Þorlákur. ,,Fyrir mig hefur alltaf verið rosalega mikilvægt að vinnan sem maður fer í, að það sé þörf fyrir mann. Ef að KSÍ myndi hafa þörf fyrir mig í þessu starfi þá hefði ég áhuga. En ég held að þeir hafi ekkert þörf fyrir mig. Mig langar að fara eitthvað þar sem er þörf fyrir mig eða að það svalar minni ævintýraþrá,“ bætti hann við.
Honum finnst jafnframt að KSÍ þurfi að móta stöðu yfirmanns knattspyrnumála ögn betur.
,,Það sem er kannski ekki spennandi við þetta starf hjá KSÍ er að ég held að KSÍ viti ekki ennþá hvernig þeir ætla að hafa það. Svo er auðvitað Covid búið að koma upp svo það er kannski eðlilegt að menn hugsi sig um. Þeir kannski ákveða á næsta ári að breyta eitthvað til eða hvernig sem það verður. Arnar byrjaði á ákveðnum hlutum svo getur vel verið að menn vilji móta starfið í aðra átt með öðrum manni. Það er allavega ekki eitthvað sem ég er að hugsa um.“