fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
433Sport

Man Utd gefur út yfirlýsingu vegna Varane

Helgi Sigurðsson
Þriðjudaginn 27. júlí 2021 18:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United hefur staðfest á heimasíðu sinni að félagið hafi náð samkomulagi við Real Madrid og Raphael Varane um komu leikmannsins til Manchester.

Það kom fram í gær að félögin hefðu náð saman. Talað er um kaupverð í kringum 40 milljónir punda.

,,Það er Manchester United sönn ánægja að tilkynna að félagið hefur náð samkomulagi við Real Madrid varðandi félagaskipti franska varnarmannsins og heimsmeistarans Raphael Varane. Skiptin ganga í gegn svo lengi sem leikmaðurinn stenst læknisskoðun og að skilmálar verði samþykktir við hann,“ segir á heimasíðu Man Utd.

Hugsanlegt er að Varane verði ekki kynntur formlega til leiks fyrr en í næstu viku þar sem hann þarf að klára sóttkví á Englandi.

Hinn 28 ára gamli Varane hefur verið í herbúðum Real Madrid í áratug.

Hann á þá 79 landsleiki að baki fyrir Frakkland. Hann var til að mynda hluti af liði þeirra sem varð heimsmeistari árið 2018.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Nú líklegast að hann fari til Spánar

Nú líklegast að hann fari til Spánar
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“