Jesse Lingard skoraði fyrsta markið í æfingarleik Man Utd gegn QPR í dag. Enski landsliðsmaðurinn sem var í fantaformi með West Ham á síðustu leiktíð renndi boltanum framhjá Seny Dieng í marki QPR eftir sendingu frá Facundo Pellistri.
Ole Gunnar Solskjaer sagði á dögunum að Lingard væri í áformum hans á næstu leiktíð.
Markið má sjá hér að neðan.
⚽ A frantic start to today’s game with @JesseLingard getting the ball rolling…#MUTV offer code: 𝗠𝗨𝗧𝗩𝗧𝗢𝗨𝗥𝟮𝟭#MUFC
— Manchester United (@ManUtd) July 24, 2021