Paul Pogba gæti enn farið frá Manchester United í sumar. Samningur leikmannsins rennur út eftir eitt ár og hefur franski miðjumaðurinn ekki enn skrifað undir nýjan. Fari Pogba frá Man Utd er Leon Goretzka orðaður við liðið sem arftaki hans. The Sun fjallar um málið.
Hinn 28 ára gamli Pogba hefur verið hjá Man Utd frá árinu 2016. Þá kom hann frá Juventus á tæpar 90 milljónir punda.
Það hefur þó oft á tíðum gustað um leikmanninn og hann verið orðaður við önnur félög. Pogba hefur til að mynda verið orðaður við Paris Saint-Germain í sumar.
Staða Goretzka hjá Bayern Munchen er svipuð. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum. Vegna þess gæti hann orðið ódýr kostur fyrir Man Utd ef liðið þyrfti að finna arftaka Pogba.